Enski boltinn

Mourinho hundsaði Wenger eftir leik og henti verðlaunapeningnum upp í stúku | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var ekki sáttur eftir tap ensku meistaranna fyrir Arsenal í leiknum um Samfélagsskjöldinn í dag.

Alex Oxlade-Chamberlain skoraði eina mark leiksins á 24. mínútu með glæsilegu skoti.

Eftir leikinn óskaði Mourinho leikmönnum Arsenal til hamingju en lét vera að heilsa Arsene Wenger, stjóra Skyttanna, en það verður seint sagt að þeir séu miklir vinir.

Þegar Mourinho gekk út af vellinum kastaði hann svo verðlaunapeningnum sínum upp í stúku til ungs stuðningsmanns Arsenal.

Atvikið má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×