Enski boltinn

Mourinho fékk 728 milljónir fyrir að taka ekki annað starf á meðan United gerði upp hug sinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
José Mourinho er hundeltur af ensku pressunni.
José Mourinho er hundeltur af ensku pressunni. vísir/getty
Enska blaðið Daily Mail fullyrðir að Manchester United borgaði portúgalska þjálfaranum José Mourinho fjórar milljónir punda eða því sem nemur 728 milljónum íslenskra króna fyrir að taka ekki annað starf áður en forráðamenn voru búnir að gera upp hug sinn.

Mourinho er sagður hafa sest að samningaborðinu með forráðamönnum Manchester United í janúar en óvíst hefur verið síðustu mánuði hvort Louis van Gaal verði látinn fara eða ekki. Yfirmenn á Old Trafford vildu bíða og sjá hvort hann næði markmiðum félagsins.

Manchester United komst ekki í Meistaradeildina en varð bikarmeistari um helgina eftir 2-1 sigur á Crystal Palace í framlengdum leik. United hafði ekki orðið bikarmeistari síðan 2004 þegar liðið lagði Millwall, 3-0.

Enskir fjölmiðlar fullyrða allir sem einn að United ætli að reka Van Gaal og það líklega í dag en Mourinho verði svo kynntur til sögunnar á morgun. Til að tryggja það að Portúgalinn væri á lausu þegar að þessum tímapunkti kæmi fékk hann fjórar milljónir punda í hálfgerð biðlaun.

Fram kemur einnig í frétt Daily Mail að Mourinho hafi hafnað því að vera með hegðunarklásúlu í samningi sínum en hann hefur ekki alltaf verið barnanna bestur á hliðarlínunni og var tvívegis úrskurðaður í hliðarlínubann sem stjóri Chelsea.

Mourinho færi 200 milljónir punda til að kaupa nýja leikmenn en félagið ætlar sér aftur á toppinn með José Mourino sem nýjan knattspyrnustjóra.


Tengdar fréttir

Pardew baðst afsökunar á danssporunum

Knattspyrnustjóri Crystal Palace sagðist hafa leyft sér að njóta stundarinnar þegar Puncheon kom þeim yfir á Wembley en ákvað að biðjast afsökunar eftir leik.

Sér Pardew eftir þessum sporum? | Sjáðu dansinn

Knattspyrnustjóri Crystal Palace tók létt dansspor eftir að Jason Puncheon kom Crystal Palace yfir í úrslitum enska bikarsins í dag en það kom heldur betur í bakið á honum stuttu síðar.

Van Gaal: Þetta er búið

Louis van Gaal, knattspyrnustjóri nýkrýndra bikarmeistara Manchester United, virðist vera meðvitaður um að dagar hans hjá félaginu séu taldir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×