Sport

Mourinho auglýsir Wimbledon: Það sérstaka

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, kemur óvænt fram í auglýsingu fyrir Wimbledon-tennismótið í ár. Mourinho, sem hefur lengi verið kallaður sá sérstaki, segir að mótið sé „það sérstaka“ (e. the special one).

Mourinho segir í auglýsingunni að mótið sé sérstakt sögunnar vegna en eftirminnilegasta augnablikið að hans mati er sigur Andy Murray á mótinu árið 2013, er hann varð fyrsti Bretinn til að vinna sigur í einliðaleik karla síðan 1936.

Núverandi meistarar í einliðaleik eru Novak Djokovic og Petra Kvitova en í ár fer mótið fer fram í byrjun júlí ár hvert.

Auglýsinguna má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×