Enski boltinn

Mourinho ætti að biðja hana afsökunar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eva Carneiro og sjúkraþjálfarinn Jon Fearn huga að Eden Hazard í uppbótartíma í 2-2 jafntefli Chelsea og Swansea.
Eva Carneiro og sjúkraþjálfarinn Jon Fearn huga að Eden Hazard í uppbótartíma í 2-2 jafntefli Chelsea og Swansea. Vísir/AFP
Sú ákvörðun Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea, að banna lækni Chelsea-liðsins, Evu Carneiro, að koma nálægt liðinu á æfingum, leikjum eða á hóteli liðsins, hefur vakið upp hörð viðbrögð á Englandi.

Mourinho var mjög ósáttur með þá ákvörðun Evu Carneiro að hlúa að meiðslum Eden Hazard í uppbótartíma í 2-2 jafntefli Chelsea og Swansea í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Mourinho sagði að læknirinn skildi ekki leikinn og að hún hafi ekki farið eftir fyrirmælum hans.

Mourinho talaði um það eftir leikinn að læknalið Chelsea hafi þarna sýnt óþarfa hvatvísi og barnalega hegðun. „Hvort sem að þú ert búningastjóri, læknir eða ritari á bekknum þá verður þú að skilja leikinn," sagði Jose Mourinho í viðtali á blaðamannafundi eftir leikinn.

Hjá flestum liðum hefði svona ákvörðun kannski ekki fengið mikið pláss í enskum fjölmiðlum en Evu Carneiro sker sig úr af því að hún er einn allra vinsælasti læknirinn í enska boltanum.

Það hjálpar heldur ekki Mourinho í þessu skrýtna máli að hann var að gera lítið úr konu með þessari ákvörðun sinni. Það hefur líka komið í ljós að samkvæmt reglum leiksins þá er má læknaliðið ekki fara inn á völlinn nema með leyfi dómarans.

Michael Oliver, dómari leiks Chelsea og Swansea, kallaði ekki einu sinni heldur tvisvar á Evu Carneiro og sjúkraþjálfara hennar í umræddum meiðslum Eden Hazard. Eva var því ekki að óhlýðnast Mourinho heldur að fylgja reglum leiksins.

Peter Brukner, fyrrum læknir Liverpool, heimtar afsökunarbeiðni frá portúgalska stjóranum fyrir að niðurlægja Evu opinberlega. Hann segir að Jose Mourinho hafi hundrað prósent rangt fyrir sér.

„Hann ætti að biðja hana afsökunar og félagið ætti sjálft að sjá til þess að hvorki læknirinn né sjúkraþjálfarinn verði lækkuð í tign vegna þessa máls," sagði Peter Brukner við BBC Radio 5 en hann vinnur nú hjá ástralska krikket landsliðinu.

Peter Brukner er langt frá því að vera sá eini sem hefur komið til varnar Evu en hún hefur fengið mikinn stuðning frá fremstu mönnum innan lækna- og sjúkraþjálfara hóps enskra íþrótta.

Eva Carneiro er 41 árs gömul og kom fyrst til Cheslea árið 2009. Hún vann fyrst með varaliði Chelsea en það var André Villas-Boas sem gaf henni stöðuhækkun og tók hana inn í aðallliðið. Hún hefur unnið fyrir knattspyrnustjórana Villas-Boas, Roberto Di Matteo, Rafael Benítez og José Mourinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×