Enski boltinn

Mourinho ætlar að taka Varane frá Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Raphael Varane.
Raphael Varane. vísir/getty
Franski varnarmaðurinn Raphael Varane er sterklega orðaður við Man. Utd þessa dagana.

Þessi 23 ára leikmaður Real Madrid fékk tækifærið ungur hjá Real Madrid er Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, var þjálfari Real.

Mourinho hefur alla tíð síðan verið mikill unnandi leikmannsins og er sagður ætla að reyna að lokka hann yfir til Manchester.

Varane á þó fjögur ár eftir af samningi sínum við Real og yrði ekki ódýr. Þess utan vill þjálfari Real, Zinedine Zidane, halda honum. Það verður því ekki auðvelt fyrir United að næla í leikmanninn.

Hann er ekki að spila fyrir Frakkland á EM þar sem hann er meiddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×