Enski boltinn

Mourinho: Wenger er ekki keppinautur minn

Jose Mourinho.
Jose Mourinho. vísir/getty
Það er ekkert sérstaklega hlýtt á milli stjóranna Jose Mourinho og Arsene Wenger.

Lið þeirra, Chelsea og Arsenal, mætast í toppslag um helgina. Þeim lenti saman í leik liðanna á síðasta ári.

Mourinho virðist ekki hafa neitt rosalega mikið álit á kollega sínum hjá Arsenal sem hann kallaði sérfræðing í klúðri í fyrra.

„Eina sem skiptir máli er fótboltaleikurinn. Fyrir mér er Wenger ekki keppinautur minn," sagði Mourinho. „Hann er stjóri hjá stóru félagi í sömu borg og Chelsea. Þeir hafa sín markmið eins og við."

Chelsea er með tíu stiga forskot í deildinni þegar aðeins sex umferðir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×