Enski boltinn

Mourinho: Rooney er minn maður og ég treysti honum fullkomnlega

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mourinho.
Mourinho. Vísir/getty
Jose Mourinho segist treysta Wayne Rooney fullkomnlega en fyrirliðinn var settur á bekkinn gegn Leicester í gær.

Manchester United vann þá góðan 4-1 sigur á Englandsmeisturunum og kom Rooney ekkert við sögu í leiknum.

United spilaði líklega sinn besta leik á tímabilinu og einmitt þegar Rooney dettur úr byrjunarliðinu.

Mourinho var ánægður með sína menn eftir leikinn en hafði þetta að segja um Rooney; „Hann er minn maður og ég treysti honum fullkomnlega. Hann er alveg eins ánægður með þennan leik og ég akkúrat núna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×