Enski boltinn

Mourinho: Hvernig getum við komið hinu liðinu á óvart þegar einn ykkar er rotta?

Tómas Þór Þórðarson skrifar
José Mourinho yfirgaf Real Madrid 2013.
José Mourinho yfirgaf Real Madrid 2013. vísir/getty
Pólski markvörðurinn Jerzy Dudek segir frá því í nýrri bók sinni að José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hafi gjörsamlega misst vitið inn í búningskelfa liðsins eftir leik gegn Barcelona árið 2011.

Mourinho grunaði þá að leikmaður í Real-liðinu væri að leka byrjarliðinu í fjölmiðla eftir að hann sá að allir vissu að hann ætlaði að spila Pepe á miðjunni í leiknum.

Því var haldið fram á þeim tíma að Iker Casillas, markvörður og fyrirliði Real, væri sá seki en hann og Mourinho áttu ekki gott samband. Mourinho ásakaði Esteban Granero og fleiri um að hafa lekið liðinu.

Dudek segir Mourinho hafa komið inn í klefann eftir 1-1 jafnteflið nokkuð sáttan. Hann var þokkalega ánægður með úrslitin þar sem Real spilaði manni færri allan seinni hálfleikinn.

„Síðan bætti hann við: Ég sé að samband ykkar við fjölmiðla er mjög gott. Ég veit við verðum að halda þeim góðum, en ég vissi ekki að sambandið væri svona gott. Ég heyrði frá þeim að þið viljið ekki funda fyrir leiki, að við æfum föst leikatriði rangt og taktískar æfingar okkar séu ekki nógu góðar,“ sagði Mourinho, en það er Goal.com sem greinir frá.

„Ég kveiki síðan á sjónvarpinu mínu fjórum tímum fyrir leik og hvað í fjandanum þarf ég að horfa upp á? Blaðamann vera að gefa upp byrjunarliðið!“

„Síðan byrjaði Mourinho að öskra: Hvernig eigum við að koma þeim á óvart þegar einn af ykkur er rotta? Já, rotta! Einhver gaf út byrjunarliðið fyrir leikinn.“

„Þeir vissu allt. Hvernig við æfðum, hvernig við ætluðum að koma þeim á óvart og að við vildum spila Pepe á miðjunni til að gegn Lionel Messi.“

„Mourinho öskraði: Hver er rottan? Hver er það? Er það þú? spurði hann og benti á Granero. Hann benti á nokkra aðra og spurði: Hvernig getið þið eyðilagt allt sem við höfum gert í vikunni?“ sagði José Mourinho.

Portúgalinn þjálfaði Real Madrid frá 2010-2013 áður en hann sneri aftur til Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×