Enski boltinn

Mourinho: Erum betur undirbúnir í ár

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Jose Mourinho.
Jose Mourinho. Vísir/Getty
Jose Mourinho telur að leikmenn Chelsea séu betur í stakk búnir til þess að mæta liðum í vetur sem mæta til þess að halda markinu hreinu og ná jafntefli.

Chelsea varð af mikilvægum stigum í titilbaráttunni á síðasta tímabili þegar liðið tapaði fyrir Sunderland á heimavelli ásamt því að gera jafntefli við West Ham, WBA og Norwich.

„Við erum búnir að undirbúa liðið betur fyrir leiki sem liðin koma með aðeins eitt markmið og það er að halda markinu hreinu. Við fengum til okkar sterka karaktera sem gefast ekki upp og geta breytt leikjum,“ sagði Mourinho.

 

„Við verðum að undirbúa okkur undir þessa leiki þar sem allir leikmenn liðsins eru fyrir aftan boltann. Við höfum æft þetta á undirbúningstímabilinu og við þurfum að gera betur í þessum leikjum í ár.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×