Enski boltinn

Mourinho: Besta frammistaða Chelsea á tímabilinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mourinho horfir til himins í dag.
Mourinho horfir til himins í dag. vísir/getty

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segir að frammistaða Chelsea gegn Tottenham hafi verið besta frammistaða Chelsea á tímabilinu. Liðin gerðu markalaust jafntefli á White Hart Lane fyrr í dag.

„Ég er mjög ánægður með þessa frammistöðu. Ég er ánægður með liðið í heild. Þetta var besta frammistaða Chelsea á tímabilinu gegn hættulegu liði," sagði Jouse Mourinho í samtali við fjölmiðla í leikslok.

„Við stjórnuðum leiknum og fengum bestu færi leiksins. Mitt lið átti skilið meira en eitt stig."

Chelsea hefur byrjað leiktíðina hræðilega og er í fjórtánda sæti deildarinnar eftir fjórtán leiki með fimmtán stig. Mourinho segir að desember verði góður mánuður.

„Núna er liðið byrjað að spila aftur saman og það er betri andi í liðinu. Ég lít á framtíðina og við spiluðum þrjá leiki á Stamford Bridge í desember og svo gegn United og Leicester á útivelli. Ég held að góður desember mánuður bíði okkar," sagði hinn litríki Mourinho að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×