Innlent

Mótmæla harðlega tvöföldun á bílastæðagjöldum við Keflavíkurflugvöll

Birgir Olgeirsson skrifar
Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík. Vísir/Valli
Neytendasamtökin mótmæla harðlega hækkunum Isavia á bílastæðagjöldum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í yfirlýsingu frá samtökunum krefjast þau að þessar hækkanir verði dregnar til baka en til vara að þær verði lækkaðar og gerðar mun minni en gert er ráð fyrir.

Í frétt á vef Isavia, sem annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla á Íslandi, kemur fram að vegna mikillar fjölgunar um Keflavíkurflugvöll og aukinnar aðsóknar að bílastæðum við flugvöllinn sé nauðsynlegt að fara í framkvæmd á fjölgun þeirra og ætlar Isavia að láta gjaldskrárhækkunina standa undir kostnaði við þær framkvæmdir.

Gjaldskrárbreyting á skammtímastæðum er eftirfarandi:

Skammtímastæði P1 og P2, verð nú 230 kr. á klst.

Fyrstu 15 mín. gjaldfrjálsar

Fyrsta klst. 500 kr.

Hver klst. eftir það 750 kr.

Gjaldskrárbreyting á langtímastæðum:

Langtímastæði P3:

Fyrsta vika úr 950 kr. í 1.250 kr. pr. sólarhring

Önnur vika úr 600 kr. í 950 kr. pr. sólarhring

Þriðja vika úr 400 kr. í 800 kr. pr. Sólarhring

Starfsmenn greiða 24 þúsund á ári

Einnig er nú hafin gjaldtaka á starfsmannabílastæðum við flugstöðina. Munu starfsmenn þurfa að greiða um 24 þúsund krónur í bílastæðagjöld á ári, eða 2.000 krónur á mánuði.  Gjaldskrárbreytingin tekur gildi 1. apríl 2016.

Neytendasamtökin segja hækkunina nema allt að 117 prósentum þar sem hún verður mest.

„Isavia réttlætir þessa hækkun með fjölgun farþega. Væntanlega er þar átt við fjölgun erlendra ferðamanna hingað til lands. Neytendasamtökin minna á að þeir sem nota þessi bílastæði eru ekki erlendir ferðamenn heldur Íslendingar,“ segja Neytendasamtökin og bæta við:

„Isavia hefur í dag einokun á bílastæðum við Leifsstöð og það er í krafti þeirrar einokunar sem Isavia treystir sér til að hækka verðið jafn mikið og nú er ráðgert.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×