Fótbolti

Mótherjar dagsins frá Ungverjalandi: Forna stórveldið komið aftur

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Adam Szalai skorar fyrra mark Ungverja gegn Austurríki.
Adam Szalai skorar fyrra mark Ungverja gegn Austurríki. vísir/getty
Næstu mótherjar Íslands á Evrópumótinu er Ungverjaland. Sögulega eru Ungverjar ein stærsta og merkasta fótboltaþjóð Evrópu. Á sjötta áratug síðustu aldar fór liðið alla leið í úrslitaleik HM í Sviss með Ferenc Puskás í fararbroddi en tapaði.

Um áratugaskeið voru ungversk lið meðal þeirra sterkustu í Evrópu. Frá tíunda áratug síðustu aldar og þar til nú hefur ungversk knattspyrna ekki verið upp á marga fiska. Ungverjar komust á HM 1978, 1982 og 1986 en síðan þá hafa þeir ekki komist á stórmót.

Ungverjar hafa heldur ekki verið á Evrópumóti síðan 1972 þegar þeir náðu fjórða sæti. Þó Ung­verjar séu ekki í fyrsta sinn á stórmóti eins og Íslendingar upplifir ný kynslóð fótboltaáhugamanna ungverska landsliðið á meðal þeirra bestu í fyrsta sinn.

Ólíkt Íslandi hefði Ungverjaland ekki komist á 16 liða Evrópumótið. Liðið var ekkert sérstaklega sannfærandi í undankeppninni þar sem það fékk 16 stig í slakasta riðlinum sem Norður-Írland vann. Ungverjar tóku svo Norðmenn í umspilsleikjum sem voru ekki mikið fyrir augað.

Ungverska liðið nýtti tímann greinilega vel frá því það tryggði sig inn á EM og er betra í dag. Varnarleikurinn er þéttur og má alls ekki lenda undir gegn því. Auk öflugs varnarleiks er joggingbuxnamarkvörðurinn Gábor Király betri en enginn í markinu. Ungverjaland er ekki ósvipað íslenska liðinu en þar er engin ofurstjarna heldur sterk liðsheild sem verst vel frá fremsta manni. Ungverjum líður ekki alltof vel með boltann.

Þeir vilja frekar liggja til baka og beita beittum skyndisóknum með fyrirliðann Balázs Dzsudzsák sem sinn besta mann. Ungverjaland er sýnd veiði en ekki gefin en staðreyndin er sú að Ísland er betra lið og eiga strákarnir okkar að stefna á sigur eins og þeir pottþétt gera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×