Innlent

Mosfellsheiði opnuð á ný

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hálka og hálkublettir eru víða á vegum landsins.
Hálka og hálkublettir eru víða á vegum landsins. Vísir/Vilhelm
Uppfært klukkan 12:46: Mosfellsheiðin hefur verið opnuð á ný.

Mosfellsheiðinni hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna umferðarteppu að því er segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Færð og aðstæður á vegum eru annars þessar:

Hálka er á Hellisheiði, Þrengslum og Sandsskeiði en á Suðurlandi er all víða nokkur hálka eða snjóþekja. Hálkublettir eru á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi. Ófært er í Kjósarskarði og á Suðurstrandavegi en unnið að hreinsun.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir og snjóþekja á nokkrum útvegum.

það er snjóþekja eða hálka á vegum á Vestfjörðum og víðast hvar einhver skafrenningur á fjallvegum.

Á Norðurlandi vestra er greiðfært frá Hrútafirði að Blönduósi en annars hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Norðaustanlands er hálka eða snjóþekja og víða éljagangur.

Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Austurlandi og víða snjókoma eða éljagangur.Þæfingsfærð er á Oddskarði eins og er en unnið að hreinsun. Ófært er á Breiðdalsheiði og Öxi.

Það er að mestu greiðfært með suðausturströndinni en þó eru hálkublettir á stöku stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×