Handbolti

Mors-Thy náði í stig gegn meisturunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mors-Thy hefur leikið þrjá leiki í röð án þess að tapa.
Mors-Thy hefur leikið þrjá leiki í röð án þess að tapa. mynd/facebook-síða mors-thy
Mors-Thy náði í gott stig gegn dönsku meisturunum í Kolding á útivelli í kvöld. Lokatölur 24-24.

Íslendingarnir í liði Mors-Thy skoruðu sjö af 24 mörkum liðsins. Agnar Smári Jónsson var með þrjú mörk og þeir Guðmundur Árni Ólafsson og Róbert Aron Hostert með tvö mörk hvor. Róbert átti auk þess þrjár stoðsendingar.

Mors-Thy er í 11. sæti deildarinnar með sex stig, jafnmörg og Midtjylland sem tapaði stórt fyrir Skjern á heimavelli, 21-30.

Vignir Svavarsson skoraði eitt mark fyrir Midtjylland sem hefur tapað tveimur leikjum í röð.

Sigurbergur Sveinsson skoraði tvö mörk fyrir Team Tvis Holstebro sem tapaði með fimm marka mun, 30-35, fyrir Århus á heimavelli.

Egill Magnússon komst ekki á blað í liði Holstebro líkt og Sigvaldi Guðjónsson hjá Århus sem situr á toppi deildarinnar með 10 stig. Holstebro er hins vegar í 7. sæti með átta stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×