Enski boltinn

Morrison hetja WBA

Vísir/Getty
West Bromwich Albion gerði sér lítið fyrir og skellti Tottenham á White Hart Lane í dag. James Morrison var hetjan.

Leikurinn var ekki mikið fyrir augað, en heimamenn í Tottenham voru meira með boltann. Þeir náðu þó ekki að skapa sér mikið af færum og gestirnir voru þéttir til baka.

Eina markið kom ekki fyrr en eftir 74. mínútna leik þegar James Morrison skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Chris Brunt.

Þannig urðu lokatölur og Alan Irvine fagnaði sínum fyrsta sigri sem þjálfari í efstu deild. WBA er með fimm stig eftir fimm leiki, en Tottenham er í níunda sætinu með sjö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×