Innlent

Morgunleikfimin áfram á Rás 1: Fyrrverandi ráðherra brást illa við fyrirhuguðum dagskrárbreytingum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Halldóra Björnsdóttir hefur verið stjórnandi Morgunleikfiminnar frá árinu 1987.
Halldóra Björnsdóttir hefur verið stjórnandi Morgunleikfiminnar frá árinu 1987. VÍSIR/ARNÞÓR
Marga hlustendur Rásar 1 rak í rogastans í morgun þegar Halldóra Björnsdóttir, sem hefur verið stjórnandi Morgunleikfiminnar frá árinu 1987, tilkynnti að þáttur hennar yrði tekinn af dagskrá.  

Þeirra á meðal var Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, sem fann nýjum útvarpsstjóra, Magnúsi Geir Þórðarsyni allt til foráttu í færslu á bloggsíðu sinni.

„Að fella niður áratuga fast útvarpsefni sem á sér gróinn sess meðal þjóðarinnar án raka  er ekki lengur fyndið né  nýtískulegt heldur miklu frekar undirstrikar hroka og  firringu stjórnenda útvarps þjóðarinnar,“sagði Jón þar meðal annars og vísaði til hinnar háværu umæðu sem skapaðist í kringum ákvörðun RÚV að að fella niður dagskrárliðina morgunbæn, morgunandakt og orð kvöldsins af dagskrá Rásar 1



Halldóra segir í samtali við Vísi að óþarfi sé þó að örvænta -  Morgunleikfimin muni koma til að vera áfram á dagskrá Rásar 1 um ófyrirséða framtíð, þrátt fyrir tilkynningu um afnám hennar í lok þáttar morgunsins.

Að sögn Þrastar Helgasonar, dagskrárstjóra Rásar 1, hafði staðið til að færa morgunleikfimina inn í annan útvarpsþátt á stöðinni en sú ákvörðun hafi verið dregin til baka. Þátturinn sem sendur var út í morgun hafði þó verði tekinn upp áður en ákveðið var að snúa við fyrri ákvörðun og því hafi tilkynningin sem hljómaði í viðtækjum landsmanna í raun verið barn síns tíma.

Leikfimin verður því áfram á sínum stað klukkan 09:45.


Tengdar fréttir

Bænirnar hverfa af RÚV: "Áfall fyrir kristindóminn í landinu“

Vígslubiskupinn í Skálholti er afar óhress með Ríkisútvarpið fyrir að ætli að fella niður morgunbæn, morgunandakt og orð kvöldsins á Rás eitt í lok mánaðarins. "Afar lítil hlustun á þessa dagskrárliði“, segir dagskrárstjóri rásarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×