Enski boltinn

Morgan: Mér hefur aldrei liðið svona vel

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stuðningsmenn Leicester fagna í kvöld.
Stuðningsmenn Leicester fagna í kvöld. vísir/getty
Wes Morgan, fyrirliði Leicester, fagnaði með félögum sínum heima í stofu í kvöld og verður að fagna eitthvað fram eftir nóttu þar sem Leicester er orðið Englandsmeistari.

„Mér hefur aldrei liðið svona vel á ferlinum og ég gæti ekki verið stoltari af liðinu,“ sagði Morgan í viðtali í kvöld.

Sjá einnig: Tottenham fór á taugum og Leicester er Englandsmeistari

„Það eru allir búnir að vinna mikið fyrir þessu og enginn trúði því að þetta væri hægt. En hér erum við verðskuldaðir Englandsmeistarar.

„Ég hef aldrei upplifað annan eins anda og hjá þessu liði. Við erum eins og bræður. Við erum búnir að þagga niður í mikið af fólki.

„Við höfum aldrei brotnað þó svo fólk væri að bíða eftir því. Biðin eftir laugardeginum verður löng. Það verður ótrúlega ljúft að lyfta bikarnum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×