Innlent

Mörg stór og umdeild mál bíða afgreiðslu

Höskuldur Kári Schram skrifar
Ekkert samkomulag liggur fyrir á Alþingi um framhald þingstarfa en mörg stór og umdeild mál bíða afgreiðslu. Síðari umræða um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar hófst á þriðjudag og hafa þingmenn nú rætt málið í hátt í þrjátíu klukkustundir.

Samkvæmt starfsáætlun Alþingis á þingstörfum að ljúka í næstu viku en ekkert samkomulag liggur þó fyrir milli stjórnar og stjórnarandstöðu um afgreiðslu mála.

Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna segir Unni Brá Konráðsdóttur, forseta þingsins, enn tala þannig að hún ætli að halda sér við starfsáætlun. „Hún er náttúrulega nýr forseti með metnað í þeim efnum.“

Svandís segir mikið vera rætt um ríkisfjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar en til að ljúka öðrum málum þurfi það að vera mál sem séu í sátt eða litlum ágreiningi þar sem þingmenn komist ekki hjá því að ræða mál séu þau í miklum ágreiningi. „Þannig að það er það sem fólk er að horfa á núna, að reyna að grisja það frá sem eru ágreiningsmál og ljúka þeim málum sem eru í sátt.“

Ólíklegt þykir að Alþingi klári umdeild mál eins og til dæmis áfengisfrumvarpið en málið var afgreitt í ágreiningi úr nefnd í síðustu viku. Önnur mál sem bíða afgreiðslu eru meðal annars jafnlaunafrumvarp félagsmálaráðherra og rafrettufrumvarp heilbrigðisráðherra.

Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki sjá fyrir sér að Alþingi muni funda mikið inn í sumarið. „Ég geri nú ráð fyrir því að hlutirnir fari nú að rakna upp. Starfsáætlun gerir ráð fyrir að við klárum á miðvikudagskvöld í næstu viku. Það getur skeikað einhverjum dögum með það en hins vegar þá sé ég ekki fyrir mér langa sumarfundi hér í þinginu að þessu sinni,“ segir Birgir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×