Golf

Mörg góð skor á fyrsta hring á Barclays

Adam Scott lék Ridgewood völlinn á tveimur undir pari í gær.
Adam Scott lék Ridgewood völlinn á tveimur undir pari í gær. AP/Getty
Bandaríkjamaðurinn Bo Van Pelt leiðir eftir fyrsta hring á Barclays mótinu sem hófst í gær en hann lék Ridgewood völlinn á 65 höggum eða sex undir pari.

Alls deila níu kylfingar öðru sætinu á fimm höggum undir pari en skor keppenda var almennt gott á fyrsta hring.

Rory McIlroy var þó í tómu tjóni en hann lék á 74 höggum eða þremur yfir pari. Hann er meðal neðstu manna og sagði við fréttamenn eftir hringinn að hann hefði átt erilsama viku að baki sem hefði tekið sinn toll.

Hann var í vikunni sem leið gestur í kvöldþætti Jimmy Fallon ásamt Tiger Woods en hann var einnig heiðursgestur á leik Manchester United og Swansea á Old Trafford um síðustu helgi.

Þrátt fyrir að McIlroy hafi leikið illa eru mörg þekkt nöfn ofarlega á skortöflunni en Justin Rose, Ernie Els, Bubba Watson og Rickie Fowler eru allir á þremur höggum undir pari.

Adam Scott er á tveimur höggum undir en Sergio Garcia og Phil Mickelson byrjuðu rólega og komu inn á sléttu pari.

Annar hringur verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 18:00 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×