Fótbolti

Morðinginn sem fékk samning í Brasilíu segist eiga skilið annað tækifæri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ungur stuðningsmaður Boa stillir sér upp í myndatöku með Bruno.
Ungur stuðningsmaður Boa stillir sér upp í myndatöku með Bruno. Vísir/AFP
Mál Bruno Fernandes, markvarðarins sem fékk nýverið tveggja ára samning hjá brasilísku knattspyrnufélagi, hefur vakið athygli um allan heim.

Eins og Vísir fjallaði um í gær var Fernandes handtekinn árið 2010, grunaður um að hafa myrt kærustu sína og látið hunda sína éta lík hennar.

Sjá einnig: Myrti kærustuna, lét hundana éta hana en er mættur aftur í markið

Hann var sakfelldur þremur árum síðar og dæmdur í 22 ára fangelsi. Eftir að hafa afplánað í samtals sex ár og sjö mánuði var honum hins vegar sleppt. Ástæðan fyrir því að hann hafði áfrýjað dóminum og að áfrýjunarferlið hafi tekið of langan tíma.

Styrktaraðilar hætta við

Bruno fékk því lausn á meðan að áfrýjunarmál hans er enn að þvælast í kerfinu. Um leið fékk hann samningstilboð frá nokkrum félögum en hann ákvað að semja við Boa Esporte.

Ættingjar fórnarlambsins hafa gagnrýnt þetta harkalega og aðalstyrktaraðili félagsins sagði upp samningi sínum við það vegna málsins. Þrjú önnur fyrirtæki munu hafa gert slíkt hið sama.

Fernandes var kynntur á blaðamannafundi í gær og þar neitaði hann að svara spurningum um hvort hann teldi að hann væri góð fyrirmynd fyrir þau börn sem væru að horfa á.

Bruno á blaðamannafundi Boa.Vísir/AFP
Dreymir um landsliðið

„Fólk flýr mig út af því sem gerðist í fortíðinni,“ sagði Fernandes og bætti því við að hann ætti skilið að fá annað tækifæri sem atvinnumaður í knattspyrnu.

Hann vildi heldur ekkert tjá sig um málefni styrktaraðila Boa Esporte. „Það er forsetans að svara því. Ég er bara hér til að spila fótbolta. Þegar Guð opnar dyr þá á enginn maður að loka þeim.“

Fernandes dreymir meira að segja um að fá að spila einn daginn fyrir brasilíska landsliðið.

„Maður á alltaf að leyfa sér að dreyma. Bruno er á lífi út af draumunum hans. Áður dreymdi mig um að snúa aftur og nú hef ég tækifæri til þess.“

Bruno Fernandes er 32 ára og lék síðast með Flamengo. Hann á einnig leiki að baki með Atletico Mineiro og Corinthians og var í samningaviðræðum við AC Milan á Ítalíu þegar hann var handtekinn árið 2010.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×