Erlent

Morðingi hins unga James Bulger í fangelsi í þriðja sinn

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Jon Venables var 10 ára þegar hann og Robert Thompson myrtu hinn tveggja ára James Bulger.
Jon Venables var 10 ára þegar hann og Robert Thompson myrtu hinn tveggja ára James Bulger. Nordicphotos/Getty

Jon Venables, annar tveggja drengja, sem myrtu hinn tveggja ára James Bulger, árið 1993 hefur verið handtekinn vegna vörslu á barnaklámi. Myndefnið fannst í tölvu Venables í reglubundinni heimsókn frá skilorðsfulltrúum en svipað atvik átti sér stað árið 2010 og var hann líka fangelsaður þá. Sky greinir frá þessu.

Myrtu hinn tveggja ára James Bulger

Venables og skólabróðir hans Robert Thompson komust í fréttirnar árið 1993 þegar þeir námu á brott, pyntuðu og myrtu hinn tveggja ára James Bulger í Bootle bæ, nálægt Merseyside í Bretlandi. Málið vakti mikinn óhug hjá þjóðinni og voru þeir piltar dæmdir til fangelsisvistar. Þeim var sleppt árið 2001 með ný persónuskilríki og nöfn.

Denise Fergus, móðir Bulgers, tísti árið 2010: „Byrjar þetta aftur,“ þegar Venables var fundinn sekur með vörslu barnakláms í fyrsta skipti. Stuart, eiginmaður hennar, tísti síðan aftur á dögunum: „Þú sagðir þetta alltaf...7 árum seinna...“

Fergus hefur einnig gefið það út að Venables, sem átti frumkvæðið að morðinu, hefði átt að fá þyngri refsingu þrátt fyrir að hann hafi einungis verið 10 ára. Hún kallaði hann tifandi tímasprengju og sagði að veita þyrfti þyngri dóma til þess að koma í veg fyrir að svona fólk kæmist upp með glæpi sína.


Tengdar fréttir

Morðingi James litla var með barnaklám

Ástæðan fyrir því að Jon Venables, annar þeirra sem myrti James litla Bulger, árið 1993 var handtekinn í lok febrúar þegar hann braut skilorð voru ásakanir um vörslu barnakláms. Breskir fjölmiðlar greindu frá þessu í gær en yfirvöld hafa ekki viljað staðfesta af hverju Venables var handtekinn.

Venables fær nýtt nafn

Jon Venables, annar þeirra sem myrtu hinn tveggja ára gamla James Bulger fyrir 17 árum, fær nýtt nafn þegar að hann losnar úr fangelsi.

Morðingi Bulger "enn hættulegur"

Móðir James Bulger telur þá sem fremja alvarlega glæpi þurfa þyngri refsingar. Tuttugu ár eru liðin frá því tveggja ára sonur hennar var myrtur í Liverpool á Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×