Fótbolti

Morata á leið til Real Madrid á nýjan leik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Morata fagnar marki á EM.
Morata fagnar marki á EM. vísir/getty
Spænski landsliðsframherjinn Alvaro Morata er væntanlega á leið aftur til Real Madrid.

Er Madrid sendi hann til Juventus árið 2014 höfðu þeir vit á því að setja ákvæði í samninginn sem gerði þeim kleift að kaupa hann aftur.

Framkvæmdastjóri Juventus, Beppe Marotta, segir að Madridarliðið ætli að nýta sér þetta ákvæði til þess að sækja Morata.

Real getur keypt hann til baka á ákveðna upphæð og ætlar greinilega að gera það enda hefur Morata vaxið og blómstrað hjá Juventus.

Ítalska félaginu finnst eðlilega sárt að missa Morata og Marotta segir að þeir muni reyna eins og þeir geta að kaupa hann aftur til baka.

Ólíklegt er að það gangi ef Madrid ákveður að fá hann til baka á annað borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×