Enski boltinn

Monk: Gylfi frábær í nýju hlutverki

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Swansea.
Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Swansea. Vísir/Getty
Garry Monk, stjóri Swansea, segir að Gylfi Þór Sigurðsson hafi notið sín í nýju hlutverki á miðjunni hjá liðinu síðustu vikur og mánuði.

Gylfi hóf tímabilið með látum og skoraði fjögur mörk auk þess sem hann gaf sex stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni fyrir áramót. Síðan þá hefur hann skorað eitt mark og lagt eitt upp til viðbótar.

Eftir að hann fór í bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í bikarleiknum gegn Blackburn í janúar breytti Monk um leikkerfi hjá Swansea. Gylfi var færður úr sínu hefðbundna hlutverki sem sóknartengiliður, svokölluð „tía“, í að vera fremsti maður í tígulmiðju.

„Hann er nú með tvo menn fyrir framan sig og því er hann frekar í því hlutverki að tengja saman spilið,“ sagði Monk í samtali við fjölmiðla í Wales í dag.

„Þegar Gylfi spilar með einn sóknarmann fyrir framan sig þá er meiri pressa á honum að koma með ákveðinn sóknarþunga í leikinn.“

„Hann er nú orðinn aftur að meiri miðjumanni en hann er samt ógnandi og afar hættulegur. Hann nær afar vel saman við aðra leikmenn og er enn að skapa sóknir. Hann hefur sýnt hversu klókur leikmaður er með því að aðlagast nýjum aðstæðum eins vel og hann hefur gert.“

„Þetta snýst ekki um að taka sóknarþáttinn úr hans leik. Ég tel að við séum ekki að gera það. Við erum fremur að reyna að bæta heildarsvip liðsins.“

Hann segir að þó svo að Gylfi sé ekki að skora jafn mikið og gefa jafn margar stoðsendingar og áður þá þýði það ekki að hann sé að spila illa.

„Ég held að honum og öllum öðrum sé sama um hver sjái um að skora mörkin. Það sem mestu máli er að við séum að skapa færi, skora mörk og spila góðan fótbolta. Það er aðalatriðið.“

„Mér finnst að Gylfi hafi verið frábær - og hann verður bara betri. Við eigum enn nokkuð í land miðað við það sem við viljum gera en við erum enn að taka skref fram á við. Við höfum sýnt að við getum gert marga mismunandi hluti með miðjumennina okkar sem gerir okkur betri.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×