Heilsa

Möndlu og lárperuskrúbbur fyrir þurra húð

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Skrúbbur sem nærir og mýkir húðina en hreinsar um leið burtu dauðar húðfrumur. Án allra skaðlega aukaefna og ótrúlega einfaldur að búa til. Húðin verður silkimjúk og falleg eftir þennan. Hægt að nota bæði á andlit og líkama.

Uppskrift:

1 þroskuð lárpera

1/3 bolli möndlur

1 bolli haframjöl

1. Skælið lárperuna og stappið saman.

2. Notið matvinnsluvél eða blandara til þess að mylja möndlurnar og haframjölið.

3. Blandið hráefnunum saman í skál.

4. Nuddið skrúbbnum á allan líkamann með hringlaga hreyfingum.

5. Farið í sturtu eða bað á eftir.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×