Fótbolti

Molde komst ekki í bikarúrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Björn Bergmann í búningi Molde.
Björn Bergmann í búningi Molde. vísir/getty
Björn Bergmann Sigurðarson var í byrjunarliði Molde er liðið tapaði, 0-3, fyrir Lilleström í undanúrslitum norsku bikarkeppninnar.

Það var markalaust lengi vel en Lilleström skoraði þrjú mörk síðasta korterið og tryggði sér sæti í bikarúrslitunum.

Haukur Heiðar Hauksson var í byrjunarliði AIK en Kristinn Freyr Sigurðsson á bekknum hjá Sundsvall er liðin áttust við í sænsku úrvalsdeildinni og gerðu markalaust jafntefli.

Hjörtur Logi Valgarðsson sat á bekknum hjá Örebro sem tapaði 2-3 fyrir Eskilstuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×