Enski boltinn

Möguleiki á draumaúrslitaleik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lið þeirra Jürgens Klopp og Josés Mourinho gætu mæst í úrslitaleiknum á Wembley 26. febrúar.
Lið þeirra Jürgens Klopp og Josés Mourinho gætu mæst í úrslitaleiknum á Wembley 26. febrúar. vísir/getty
Nú rétt í þessu var dregið í undanúrslit enska deildabikarsins í fótbolta.

Í undanúrslitunum mætast annars vegar Manchester United og Hull City og hins vegar Liverpool og Southampton.

Það er því möguleiki á draumaúrslitaleik Man Utd og Liverpool á Wembley 26. febrúar 2017.

Man Utd og Southampton eiga fyrri leikina á heimavelli. Leikirnir fara fram í janúar á næsta ári.


Tengdar fréttir

Hull áfram eftir vítakeppni

Eldin Jakupovic var hetja Hull City þegar liðið komst í undanúrslit enska deildabikarsins eftir sigur á Newcastle United í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×