Erlent

Mögulegt ebólutilfelli í Stokkhólmi

Atli Ísleifsson skrifar
Sjúklingurinn var fluttur á Karolinska sjúkrahúsið frá Solna fyrr í dag.
Sjúklingurinn var fluttur á Karolinska sjúkrahúsið frá Solna fyrr í dag. Vísir/AFP
Lénsstjórn í Stokkhólmi hefur tilkynnt að mögulegt ebólutilfelli hafi komið upp í sænsku höfuðborginni. Manninum er nú haldið í einangrun á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, en hann var fluttur þangað frá Solna fyrr í dag.

Sjúklingurinn sýndi ákveðin einkenni sjúkdómsins, en hann hafði nýlega heimsótt eitt af löndunum í Vestur-Afríku þar sem ebóla hefur breiðst út síðustu mánuði.

Í frétt DN er haft eftir smitsjúkdómalækni að líkurnar á ebólufaraldri í Svíþjóð séu mjög litlar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×