Lífið

Mögulega misheppnaðasta tilraun manns til að sníkja koss

Atli Ísleifsson skrifar
Fagnaðarlætin voru mikil fyrir utan Rauðu mylluna eða Moulin Rouge í París fyrr í kvöld þar sem stuðningsmenn Íslands og annarra landa fögnuðu ýmist árangri sinna manna eða þá drekktu sorgum sínum.

Kolbeinn Tumi Daðason og Björn G. Sigurðsson tökumaður fylgdust með stemningunni og tóku nokkra eldhressa stuðningsmenn tali fyrr í kvöld.

Undir lok útsendingarinnar (um 13:30) mættu tvær hressar írskar stúlkur fyrir framan myndavélina sem voru skiljanlega ánægðar með landa sína sem höfðu unnið Ítali 1-0 og þar með tryggt Írum  sæti í 16 liða úrslitum.

Austurríkismaður nokkur tróð sér þá fram fyrir og gerði einhverja misheppnuðustu tilraun sem fests hefur á filmu til að fá koss frá konunum sem virtust ekki hafa nokkurn einasta áhuga á umleitunum Austurríkismanninsins sem líkt og austurrísku landsliðsmennirnir fór því heim með skottið á milli lappanna.

Sjá má tilraunir Austurríkismannsins í spilaranum að neðan þegar um 13 mínútur og 30 sekúndur eru liðnar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×