Mögnuð stemning og glæsileg umgjörð á heimaleikjum Füchse Berlin Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Berlín skrifar 16. febrúar 2012 11:30 Füchse Berlin - refirnir frá Berlín. Þessi tvö voru mætt snemma.
Tæplega níu þúsund manns voru á leik Füchse Berlin og Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni í gær en óhætt er að segja að áhorfendur hafi skemmt sér konunglega. Füchse Berlin vann leikinn, 24-20, eftir að hafa leitt strax frá fyrstu mínútu heimamönnum til mikillar ánægju. Umgjörðin var öll hin glæsilegasta og mikil sýning sett á svið fyrir áhorfendur. Vísir var á staðnum og fékk að smella af nokkrum myndum af stuðningsmönnum liðanna.Max-Schmeling-höllin er hin glæsilegasta og tekur um níu þúsund manns í sæti. Hér er rúmur klukkutími í leik og aðeins þeir allra hörðustu mættir.Tveir af dyggustu stuðningsmönnum Füchse Berlin.Mynd/E. StefánMagdeburg er aðeins 170 km í burtu frá Berlín og því um grannaslag að ræða þegar þessi tvö lið mætast. Þessir félagar voru í góðum gír fyrir leikinn.Stuðningsmenn liðanna taka leikina misalvarlega og hafa ekki allir jafn hátt. Þessir létu nokkuð mikið á sér bera og minntust þess að Magdburg varð þýskur bikarmeistari árið 1996.Það voru þó allir vinir og glatt á hjalla hjá þessum þýsku handboltaunnendum.Krakkarnir sem fengu að hlaupa inn á völlinn með leikmönnum fyrir leik virtust spenntir fyrir kvöldinu.Nú er um hálftími í leik og leikmenn byrjaðir að hita upp í þessari glæsilegu höll.Alexander Petersson mátti sætta sig við að sitja á hliðarlínunni og fylgjast með þar sem hann er meiddur. Til vinstri er markvörðurinn Silvio Heinevetter og framkvæmdarstjórinn stendur hægra megin á myndinni.Nú eru aðeins nokkrar mínútur í leik og þétt setið í stúkunni. Það voru 8696 manns á leiknum í gær.Lukkudýr félagsins er að sjálfsögðu refur og tók mikinn þátt í gleðinni.Það var líka boðið upp á eldvörpu til að kynda upp í kofanum. Áhorfendur tóku vel í það. Fyrir miðri mynd er kynnir kvöldsins.Klappstýrurnar settu líka skemmtilegan svip á umgjörðina.Hér bíða þær eftir því að leikmenn verða kynntir inn á völlinn.Þær skiptu svo um búninga í hálfleik og héldu stemningunni uppi á meðan leikmenn hvíldu sig.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira