Sport

Mögnuð endurkoma hjá Eagles

Leikmenn Eagles fagna hér sigursparki Cody Parkey.
Leikmenn Eagles fagna hér sigursparki Cody Parkey. vísir/getty
Philadelphia Eagles vann frækinn sigur á Indianapolis Colts, 30-27, í mánudagsleiknum í NFL-deildinni.

Ernirnir voru að elta allan leikinn en sparkarinn Cody Parkey tryggði þeim sigur með vallarmarki er leiktíminn rann út.

Eagles er þar með búið að vinna báða sína leiki í vetur en Colts hefur tapað báðum sínum leikjum.

Hlauparinn Darren Sproles var í lykilhlutverki hjá Eagles í nótt og átti stórleik. Leikstjórnandi Colts, Andrew Luck, kastaði boltanum frá sér á ögurstundu seint í leiknum sem varð þess valdandi að Ernirnir náðu að jafna.

Luck kastaði aðeins 172 jarda í leiknum en Nick Foles, leikstjórnandi Eagles, kastaði boltanum 331 jarda í leiknum.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×