Fótbolti

Modric ekki í byrjunarliði Króata

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Modric byrjar á bekknum.
Modric byrjar á bekknum. vísir/getty
Luka Modric er ekki í byrjunarliði Króatíu sem mætir Íslandi í undankeppni HM 2018 í Zagreb klukkan 17:00 á eftir.

Modric, sem leikur með Real Madrid, hefur verið að glíma við meiðsli og Ante Cacic, þjálfari Króatíu, treystir honum greinilega ekki til að byrja.

Króatar eru þó ekki á flæðiskeri staddir með miðjumenn en Ivan Rakitic, leikmaður Barcelona, og Mateo Kovacic, samherji Modric hjá Real Madrid, eru í byrjunarliðinu ásamt Inter-mönnunum Marcelo Brozovic og Ivan Perisic.

Byrjunarlið Króatíu er þannig skipað (4-2-3-1):

Danijel Subasic

 

Sime Vrsaljko

Vedran Corluka

Domagoj Vida

Josip Pivaric

Milan Badelj

Mateo Kovacic

Marcelo Brozovic

Ivan Rakitic

Ivan Perisic

Mario Mandzukic

Byrjunarlið Íslands má sjá með því að smella hér.

Leikur Króatíu og Íslands hefst klukkan 17:00 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir

Þessir gæjar kunna að refsa

Margir leikmenn íslenska landsliðsins fá í dag tækifæri til að hefna fyrir tapið á Maksimir-leikvanginum fyrir þremur árum í umspili um sæti á HM. Einn af þeim er landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson.

Heimir: Þarf að varast nánast allt hjá Króötum

"Það er misjafnt eftir mönnum hvernig þeir tækla tapleiki. Ég á til að mynda mjög erfitt með það,“ segir Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari er hann var nýkominn á Maksimir-völlinn í fyrsta sinn síðan í tapleiknum hér árið 2013.

Feluleikur með Modric

Ante Cacic, landsliðsþjálfari Kró­atíu, neitaði að staðfesta á blaðamannafundi í gær að Luka Modric, miðjumaður Real Madrid, myndi verða í byrjunarliði Króata í kvöld.

Gylfi: Verð sáttur hvar sem ég spila á vellinum

"Ég man vel eftir því að hafa verið inn í klefa hérna eftir leikinn fyrir þrem árum síðan. Maður gleymir því ekkert,“ segir Gylfi Þór Sigurðsson um tilfinninguna að koma aftur á Maksimir-völlinn í Zagreb.

Króatar munu ekki labba yfir Íslendinga

Króatískur blaðamaður segir að mikil virðing sé borin fyrir íslenska landsliðinu og allir eigi von á hörkuleik á morgun. Engir áhorfendur verða á leiknum og óljóst hvaða áhrif það mun hafa á króatíska­ liðið sem ætlar sér st

Úkraína upp fyrir Ísland

Úkraínumenn komust upp fyrir Íslendinga í I-riðli undankeppni HM 2018 eftir 1-0 sigur á Finnum á heimavelli í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×