Innlent

Móðir týnda Íslendingsins: „Þetta er svo yndislegur strákur“

Bjarki Ármannsson skrifar
Ekkert er vitað um ferðir Þorleifs Kristínarsonar frá því um helgina.
Ekkert er vitað um ferðir Þorleifs Kristínarsonar frá því um helgina. Vísir/Getty/Einkasafn
Móðir Þorleifs Kristínarsonar, tvítugs Íslendings sem týndist í Danmörku um helgina, kveðst ósátt með seinagang lögreglunnar þarlendis við að hefja leit að honum. Þorleifur sást síðast snemma á laugardagsmorgni í bænum Frederikshavn þar sem hann var í helgarfríi.

„Ég er hálfsár út í þá vegna þess að ég hringi í þá strax á sunnudagskvöldi og bið þá um að hjálpa við að leita,“ segir Kristín Hildur. „Þeir segja að hann sé tvítugur og ég þurfi ekkert að hafa áhyggjur, hann sé örugglega bara að hitta einhverja dömu eða eitthvað. En ég vil meina, í mínu hjarta, að ég þekki son minn betur.“

Kristín segist hafa fengið að heyra það að fyrst dagur væri að kvöldi kominn, væri lítið hægt að gera. Hún hafi svo hringt aftur á mánudagsmorgun en það hafi ekki verið fyrr en í gær sem leitin hafi almennilega farið af stað.

„Þá finna þeir fullt af upplýsingum sem þeir hefðu alveg getað fundið á mánudaginn,“ segir hún. „Þannig að mér finnst ég eiginlega hafa þurft að keppa við lögguna.“

Búinn að eiga „rosalega erfitt“

Slökkt er á farsíma Þorleifs og ekki hægt að rekja hann. Sömuleiðis hefur yfirlit á greiðslukorti hans ekki leitt neitt í ljós.

„Síðustu skilaboð sem hann sendi voru til vinkonu sinnar, þar sem hann segist vera á leiðinni,“ segir Kristín. „En við höfum ekkert heyrt og vitum ekki neitt, ekki vinir hans eða neinn.“

Þorleifur ber með sér talsverða áverka eftir alvarleg veikindi sem barn. Kristín segir að um læknamistök hafi verið að ræða en halda þurfti Þorleifi sofandi í nokkrar vikur eftir að hann fékk ofnæmisviðbrögð við verkjalyfjum. Var honum vart hugað líf. Hann hefur síðan verið blindur á öðru auganu.

„Hann er búinn að eiga rosalega erfitt, það eru svo margir búnir að koma illa fram við hann“ segir Kristín. „En hann hefur aldrei sýnt það.“

Þakklát fyrir hjálpina

Hún segir Þorleif hafa orðið fyrir miklu aðkasti á ævinni vegna áverkanna og meðal annars hafi hann þurft að fá nálgunarbann á fimm karlmenn sem áreittu hann. Þá hafi einu sinni verið gengið í skrokk á honum svo harkalega að hann missti nærri því sjón á hinu auganu. Kristín segir þó engan í fjölskyldu sinni hafa séð nokkur merki um að Þorleifur sé þunglyndur.

„Þetta er svo yndislegur strákur að þú trúir því ekki,“ segir hún. „Þetta er bara virkilega falleg sál. Það eru allir svo undrandi því þetta er svo skynsamur strákur.“

Til stóð að halda leitinni að Þorleifi áfram í dag. Mynd af honum hefur ratað víða á netinu, bæði í fjölmiðlum og á Facebook, og segist Kristín þakklátt fyrir alla þá hjálp sem hún hefur fengið frá vinum og ættingjum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×