Erlent

Móðir konunnar sem lést í Charlottesville ætlar ekki að ræða við Trump

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Susan Bro sagðist ekki myndu ræða við Donald Trump Bandaríkjaforseta eftir ummæli hans á blaðamannafundi á þriðjudag.
Susan Bro sagðist ekki myndu ræða við Donald Trump Bandaríkjaforseta eftir ummæli hans á blaðamannafundi á þriðjudag. Skjáskot
Móðir Heather Heyer, konunnar sem lést er bíl var ekið á hana í óeirðunum í Virginíu um síðustu helgi, segist ekki ætla að ræða við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Ástæðuna segir hún vera yfirlýsingar hans á blaðamannafundi á þriðjudag, þar sem hann kenndi bæði þjóðernissinnum og gagnmótmælundum um átökin.

Fréttamaður ABC-fréttastofunnar vakti máls á því við Susan Bro, móður Heyer, í viðtali í dag að Trump hygðist setja sig beint í samband við hana vegna fráfalls dóttur hennar um helgina.

„Ertu búin að ræða við hann beint?“ spurði fréttamaðurinn.

„Ég hef ekki gert það og mun nú ekki gera það,“ svaraði Bro.

„Fyrst missti ég af símtölum hans, fyrsta símtalið barst á meðan jarðarförinni stóð. Ég sá ekki einu sinni þau skilaboð og svo voru þrjú örvæntingarfull skilaboð í viðbót frá fjölmiðlafulltrúum yfir daginn og ég vissi ekki af hverju.“

Bro sagðist ekki hafa getað svarað forsetanum vegna anna í kringum jarðarför dóttur sinnar. Hún hafi heldur ekki horft á fréttir fyrr en í gærkvöldi, á fimmtudagskvöld.

„Og ég ætla ekki að tala við forsetann núna, fyrirgefið mér,“ sagði Bro en ummæli hennar má hlusta á hér að neðan.

Hafði áður þakkað forsetanum fyrir yfirlýsingu sína

Ástæðuna sagði Bro vera yfirlýsingar Trump á blaðamannafundi sem haldinn var á þriðjudag. Bro sagðist hafa séð myndskeið frá blaðamannafundinum en þar sagði Trump að báðum fylkingum, hvítum þjóðernissinnum og gagnmótmælendum, hefði verið um að kenna í átökunum sem brutust út í Charlottesville um helgina.

Mikil reiði hefur gripið um sig í Bandaríkjunum vegna andláts Heather Heyer í Virginíu um helgina. Hér heldur mótmælandi á skilti með mynd af Heyer.Vísir/AFP
„Þar gerði hann mótmælendur, „eins og ungfrú Heyer,“ jafngilda KKK-samtökunum og hvítum þjóðernissinnum,“ sagði Bro og vitnaði beint í forsetann.

Bro hafði áður þakkað forsetanum, óbeint, fyrir yfirlýsingu sína á mánudag. Þar var hann öllu mildari í afstöðu sinni og fordæmdi ofbeldi og kynþáttahatur. Trump lýsti því einnig yfir á mánudag að sérstök rannsókn yrði gerð á morði Heyer. Nú hefur Bro hins vegar þvertekið fyrir að tala við forsetann.

„Þú getur ekki skolað þessu í burtu með því að taka í höndina á mér og segja fyrirgefðu,“ sagði Bro.

Heather Heyer lést í Charlottesville um helgina þegar ökumaður, sem talinn er aðhyllast hugmyndafræði hvítra þjóðernissinna, ók á hóp gagnmótmælenda í bænum. Hún var 32 ára.


Tengdar fréttir

Repúblikanar andæfa fordómum og Trump forseta

Margir háttsettir repúblikanar hafa gagnrýnt furðuleg ummæli Donalds Trump forseta um óeirðirnar í Charlottesville í gær. Helstu leiðtogar þeirra hafa þó hikað við að beina spjótum sínum beint að forsetanum.

Tímarit gagnrýna Trump á forsíðum

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur orðið fyrir mikilli gagnrýni síðustu daga vegna ummæla sína um mótmælagöngur í Charlottesville um síðustu helgi.

Tekist á um tákn sundraðrar fortíðar

Minnisvarði um Suðurríkin voru miðpunktur mótmæla hvítra þjóðernissinna í Charlottesville um helgina. Tákn Suðurríkjanna hafa lengi verið sundrungarafl í bandarísku samfélagi.

Fyrr­ver­and­i kenn­ar­i ök­u­manns­ins seg­ir hann dá Hitl­er

James Alex Fields hefur verið ákærður, meðal annars fyrir morð, fyrir að aka bíl sínum inn í hóp fólks sem var að mótmæla samkomu þjóðernissinna vegna fyrirhugaðs niðurrifs styttu af Robert E. Lee, hershöfðinga Suðurríkjanna í þrælastríði Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×