Móðir Heiðmerkurhrotta: „Þetta er bara rosalegt" Valur Grettisson skrifar 30. apríl 2009 15:56 Stúlknaofbeldi. Myndin er sviðsett. „
Ég get bara sagt þér það að ég var ekki búin að heyra neitt af þessu nema úti í bæ," sagði móðir unglingsstúlku sem er sökuð um að vera ein af sjö árásamönnum sem gengu hrottalega í skrokk á fimmtán ára stúlku í gær. Móðir stúlkunnar var í miklu tilfinningalegu uppnámi þegar blaðamaður ræddi við hana. Hún sagðist ekki hafa talað við dóttur sína síðan málið komst í fréttirnar, né hafði nokkur annar haft samband við hana. Það eina sem hún vissi var það sem hún las og heyrði í fjölmiðlum. Stúlkurnar gáfu sig fram upp úr hádeginu í dag en lögreglan tók ekki skýrslu af þeim. Ástæðan er sú að stúlkurnar eru undir lögaldri og því þarf að hafa samband við foreldri eða barnaverndaryfirvöld. Samkvæmt heimildum Vísis voru það tvær stúlkur sem höfðu sig mest frammi í árásinni. Dóttir móðurinnar sem Vísir ræddi við, er önnur þeirra. Stúlkurnar eru nemar í Flensborg. Þær eru sautján ára gamlar. Líkamsárásin var hrottaleg og fólskuleg. Stúlkurnar linntu ekki barsmíðunum fyrr en piltur, sem var með þeim, stöðvaði þær. Í kjölfarið var fórnalambinu ekið inn í Hafnarfjörð og það skilið eftir við verslunarmiðstöðina Fjörðinn. Þaðan hringdi hún í foreldra sína sem komu henni undir læknishendur. Hún er mjög bólgin og illa farin eftir árásina samkvæmt systur hennar. Þegar blaðamaður spurði móður stúlkunnar sem er sökuð um ódæðið hvað henni fyndist um málið, svaraði hún grátandi: „Þetta er bara rosalegt."
Tengdar fréttir Námu fimmtán ára stúlku á brott og börðu í Heiðmörk Fimmtán ára stúlka var göbbuð upp í bíl við heimili sitt í gær undir þeim formerkjum að hún væri að fara að sættast við stúlku sem hún hafði átt í útistöðum við. Fljótlega komu fimm aðrar stúlkur upp í bílinn, en þar voru tvær fyrir, og óku með hana upp í Heiðmörk. Þar gengu tvær þeirra í skrokk á henni svo stórsér á henni. 30. apríl 2009 04:00 Heiðmerkurhrottar kærðir í dag Stúlkurnar sem námu 15 ára stúlku á brott og börðu í Heiðmörk í gær verða kærðar í dag, segir Hrönn Óskarsdóttir, systir fórnarlambsins. Fjölskyldan hefur fengið afar sterk viðbrögð í kjölfar árásarinnar. 30. apríl 2009 09:51 Heiðmerkurhrottarnir ekki yfirheyrðir Allar stúlkurnar sem hafa verið kærðar fyrir að ganga í skrokk á fimmtán ára stúlku í Heiðmörk í gær gáfu sig fram við lögregluna í hádeginu. Þær fóru síðar án þess að skýrsla væri tekin af þeim. Þegar haft var samband við yfirlögregluþjóninn Friðrik Smára Björgvinsson sagði hann að málið myndi fara sömu leið og sakamál gegn lögráða einstaklingum, enda eru þær sakhæfar. Aftur á móti þarf að kalla til foreldri eða barnaverndaryfirvöld þegar skýrsla er tekin af ungmennum undir átján ára aldri. Fórnalamb stúlknanna er búið að kæra árásina. Skýrslutöku er nýlokið. Stúlkurnar gengu í skrokk á fimmtán ára stelpu í Heiðmörk í gær eftir að hafa lokkað hana upp í bíl. Ástæðan á að hafa verið sú að fórnarlambið á að hafa skrifað eitthvað á netið sem þeim mislíkaði. Samkvæmt heimildum Vísis höfðu tvær stúlkur sig mest frammi í málinu. Reynt var að hafa uppi á foreldrum stúlknanna án árangurs. Báðar stúlkurnar sem eiga að bera höfuðsökina eru nemar í Flensborg. 30. apríl 2009 15:31 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira
Námu fimmtán ára stúlku á brott og börðu í Heiðmörk Fimmtán ára stúlka var göbbuð upp í bíl við heimili sitt í gær undir þeim formerkjum að hún væri að fara að sættast við stúlku sem hún hafði átt í útistöðum við. Fljótlega komu fimm aðrar stúlkur upp í bílinn, en þar voru tvær fyrir, og óku með hana upp í Heiðmörk. Þar gengu tvær þeirra í skrokk á henni svo stórsér á henni. 30. apríl 2009 04:00
Heiðmerkurhrottar kærðir í dag Stúlkurnar sem námu 15 ára stúlku á brott og börðu í Heiðmörk í gær verða kærðar í dag, segir Hrönn Óskarsdóttir, systir fórnarlambsins. Fjölskyldan hefur fengið afar sterk viðbrögð í kjölfar árásarinnar. 30. apríl 2009 09:51
Heiðmerkurhrottarnir ekki yfirheyrðir Allar stúlkurnar sem hafa verið kærðar fyrir að ganga í skrokk á fimmtán ára stúlku í Heiðmörk í gær gáfu sig fram við lögregluna í hádeginu. Þær fóru síðar án þess að skýrsla væri tekin af þeim. Þegar haft var samband við yfirlögregluþjóninn Friðrik Smára Björgvinsson sagði hann að málið myndi fara sömu leið og sakamál gegn lögráða einstaklingum, enda eru þær sakhæfar. Aftur á móti þarf að kalla til foreldri eða barnaverndaryfirvöld þegar skýrsla er tekin af ungmennum undir átján ára aldri. Fórnalamb stúlknanna er búið að kæra árásina. Skýrslutöku er nýlokið. Stúlkurnar gengu í skrokk á fimmtán ára stelpu í Heiðmörk í gær eftir að hafa lokkað hana upp í bíl. Ástæðan á að hafa verið sú að fórnarlambið á að hafa skrifað eitthvað á netið sem þeim mislíkaði. Samkvæmt heimildum Vísis höfðu tvær stúlkur sig mest frammi í málinu. Reynt var að hafa uppi á foreldrum stúlknanna án árangurs. Báðar stúlkurnar sem eiga að bera höfuðsökina eru nemar í Flensborg. 30. apríl 2009 15:31