Lífið

Modern Family tekið upp á Face time

Gleðigjafarnir í Modern Family
Gleðigjafarnir í Modern Family Vísir/Getty
Heill þáttur í sjónvarpsseríunni Modern Family var tekinn upp eingöngu á Apple vörur og í gegnum Face Time. 

Ástæðan fyrir þessu skemmtilega flippi er sú að þátturinn er sýndur í gegnum augu karktersins Claire Dunphy, sem leikin er af Julie Bowen þar sem hún á Face Time samtöl við karaktera þáttarins í gegnum Macbook tölvuna sína.

Mun því þátturinn líta út líkt og verið sé að horfa á tölvuskjá. 

Þessi sérstaki þáttur verður frumsýndur úti í Bandaríkjunum í dag, 25. febrúar og á stöð 2 þriðjudaginn 3. mars klukkan 20.15.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×