Fótbolti

MLS-deildin byrjar á réttum tíma

Kristinn og félagar í Columbus Crew spila á laugardag.
Kristinn og félagar í Columbus Crew spila á laugardag. vísir/pjetur
Kristinn Steindórsson mun ekki hefja knattspyrnuferil sinn í Bandaríkjunum í verkfalli.

Samkomulag náðist í gær milli leikmannasamtakanna og deildarinnar. Nýtt tímabil hefst því á morgun eins og til stóð.

Álíka deilur voru í deildinni árið 2010 en þá náðist að semja fimm dögum áður en tímabilið hófst.

Lágmarkslaun í deildinni hafa verið hækkuð sem og launaþakið. Enn á eftir að greina frá fleiri hlutum sem samið var um.

Opnunarleikur deildarinnar er á milli meistara LA Galaxy og Chicago Fire.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×