Menning

Mjólkurrörin sjást í nýja listaverkinu

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Ég var svolítið efins um að þetta myndi hafast, en það tókst,“ segir Arna um eitt vídeóverkanna sem er algerlega nýtt.
"Ég var svolítið efins um að þetta myndi hafast, en það tókst,“ segir Arna um eitt vídeóverkanna sem er algerlega nýtt. Mynd/Auðunn
„Ég tengi saman gamla og nýja tímann í vídeóverkinu sem er unnið fyrir þennan stað. Ég tók síðustu tökuna í gærkveldi og klippti í nótt,“ sagði Akureyringurinn Arna Valsdóttir myndlistarkona á fimmtudaginn.

Hún opnar sýninguna Staðreynd í Listasafni Akureyrar í dag klukkan 15.

Eins og mörgum er kunnugt er listasafnið þar sem Mjólkursamlag KEA var til húsa og þar kveðst Arna hafa unnið við ostagerð sem unglingur. Hún notaði hið nýja Mjólkursamlag MS sem tökustað í nýja verkinu en þaðan á hún minningar líka því hún vann við að einangra mjólkurrörin þar þegar húsið var í byggingu.

„Já, rörin sem ég skreið upp á sem unglingur sjást í verkinu,“ segir hún.



Alls sýnir Arna sex vídeóverk. Flest hefur hún sýnt áður. Verkin heita öll Staðreynd og síðan er aukatitill með hverju og einu. Það fyrsta gerði hún 2008 fyrir opnunarsýninguna í Síldarverksmiðjunni á Hjalteyri.

„Ég fór út á Hjalteyri með það fyrir augum að gera portrett af húsinu en hætti við það og ákvað að leika mér með hugtakið staðreynd – í merkingunni að upplifa reynslu staðarins. Endaði svo á að gera gjörning í löngum gangi, taka hann upp á myndband og raula síldarvalsinn.“



Eitt verk á sýningunni er frá 1988.

„Þegar ég var við nám úti í Hollandi málaði ég stúdíóið mitt svart í hólf og gólf og tók skuggamynd af því. Byrjaði svo að mála hvítt dýr sem virtist koma frá glugganum og tók mynd þegar ég búin með fremsta partinn af því, svo bættust fleiri við og drógu hvítan lit yfir rýmið og hurfu svo. Við þetta samdi ég tónlist, gerði hreyfimyndasjó úr myndunum og sýndi í rýminu. Þetta gamla verk er á skjá í litla kæliklefanum,“ lýsir Arna.

Á opnuninni klukkan 15 flytur kammerkórinn Hymnodia gjörning og svo verður Arna með listamannaspjall klukkan 20 í kvöld.

Listasafnið verður opið til klukkan 22 vegna Akureyrarvöku.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×