Innlent

Mjög þungt haldin á spítala eftir köfunarslys í Silfru

Bjarki Ármannsson skrifar
Konan liggur á Landspítalanum við Hringbraut.
Konan liggur á Landspítalanum við Hringbraut. Vísir/Vilhelm
Erlendur ferðamaður liggur mjög þungt haldinn á Landspítalanum við Hringbraut eftir alvarlegt köfunarslys í Silfru fyrr í dag. Um er að ræða konu á þrítugsaldri.

Lögreglan á Selfossi var kölluð til í hádeginu í dag vegna slyssins og konan sótt með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þá fóru sjúkraflutningamenn frá Selfossi og Reykjavík á staðinn.

Samkvæmt upplýsingum á Facebook-síðu Þingvallaþjóðgarðs verður Silfra lokuð fram yfir hádegi á morgun.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×