Skoðun

Mjög óþægilegt bergmál frá fjórða áratugnum

lars christensen skrifar
Ég reyni af fremsta megni að verða ekki hrakspámaður en ég verð að viðurkenna að ég sé mjög fáar jákvæðar fréttir um þessar mundir og ég sé sífellt þrjú atriði – mistök í peningamálastefnu/lítinn hagvöxt, uppgang öfgamanna í stjórnmálum (Trump, Orban, Erdogan, Pútín, ISIS o.s.frv.) og hraðvaxandi spennu í alþjóðastjórnmálum – sem allt blandast saman í ógeðfelldan kokkteil sem kallar fram minningar um 4. áratuginn og aðdraganda heimsstyrjaldarinnar síðari.

Það hefur lengi verið tilgáta mín að samdrátturinn í hinu hnattræna hagkerfi í kjölfar kreppunnar miklu 2008 – sem að mínu áliti var aðallega af völdum misheppnaðrar peningamálastefnu – valdi uppgangi pólitískra öfgastefna í Evrópu (Syriza og Gullin dögun í Grikklandi, Orban í Ungverjalandi, Le Pen í Frakklandi o.s.frv.) og Bandaríkjunum (Trump) og einnig uppbroti og klofningi í stjórnmálum hjá venjulegum lýðræðisþjóðum.

Þetta leiðir til þess að hægri sinnaðir lýðskrumarar eins og Donald Trump njóta fylgis, en að sama skapi njóta hópar íslamista, eins og ISIS, fylgis á meðal ungra innflytjenda í til dæmis Frakklandi og Belgíu. Þegar hinn lýðræðislegi valkostur missir aðdráttarafl sitt vinna öfgamenn og lýðskrumarar á. Hraðvaxandi stuðningur við þjóðernissinnuð öfl, sérstaklega í Mið- og Austur-Evrópu er að sama skapi áhyggjuefni.

Hin landfræðipólitíska útgáfa af þessu er Úkraína og Sýrland (og að vissu leyti Suður-Kínahaf). Með engum hagvexti eykst aðdráttarafl verndarstefnu og að lokum stríðs.

Því miður eru hliðstæðurnar við 4. áratuginn mjög skýrar – án þess að ýkja neitt skuluð þið reyna að líta á þetta:

1) Stríðið í Sýrlandi samanborið við spænska borgarastríðið: Bein og óbein aðild erlendra einræðisríkja (Stalín/Hitler og Erdogan/Pútín)

2) Verðhjöðnun evrusvæðisins samanborið við verðhjöðnun gullfótarins.

3) Uppgangur lýðskrumara og öfgamanna: Kommúnistar, nasistar og fasistar samanborið við Syriza, Gullna dögun, Jobbik, Orban, svæðisbundna aðskilnaðarstefnu í Evrópu, andúð á innflytjendum, Trump og ISIS o.s.frv.

4) Veiking (hnignun?) lýðræðisstofnana: Weimar-lýðveldið samanborið við pólitískan klofning í Evrópu – veikar og óvinsælar minnihlutastjórnir með engan „pólitískan styrk“ til að framkvæma efnahagslegar endurbætur í Evrópu.

Kannski eru þetta of miklar hrakspár, en maður verður að vera blindur á lexíur sögunnar til að sjá þetta ekki. Það þýðir samt ekki að sagan muni endurtaka sig – það vona ég sannarlega ekki – en ef við hunsum það sem er líkt með 4. áratugnum mun ástandið aðeins versna.

Besta leiðin til að komast hjá hryllingi 4. áratugarins er að efla hagvöxt, og hér er bæði þörf á að auka eftirspurn á heimsvísu – frekari og mun stórtækari slökun á peningamálastefnu bæði í Bandaríkjunum og Evrópu – og að koma á gagngerum kerfisumbótum. Ef við grípum ekki til slíkra stefnubreytinga er greinilega hætta á að aðdráttarafl þjóðernissinnaðra lýðskrumara muni aukast og að um leið munum við sjá aukna róttækni á meðal ungra innflytjenda í Evrópu.

Svo ef okkur er alvara með að berjast gegn öfgastefnum og hryðjuverkum verðum við að auka verulega viðleitni okkar til að örva hagvöxt, sérstaklega í Evrópu.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×