Erlent

Mjanmarar níu milljónum færri en haldið var

Atli Ísleifsson skrifar
Manntalið var gert í mars og apríl á þessu ári.
Manntalið var gert í mars og apríl á þessu ári. Vísir/AFP
Nýtt manntal sýnir fram á að Mjanmarar eru um níu milljónum færri en haldið var. Manntalið er það fyrsta sem gert er í landinu í rúm þrjátíu ár.

Síðasta manntal var gert árið 1983 og hefur ríkisstjórn landsins áætlað mannfjöldann vera um sextíu milljónir. Tölur sem birtar voru í dag sýna mannfjöldann hins vegar einungis vera um 51 milljón.

Ríkissjónvarp landsins birti bráðabirgðatölurnar í dag, en endanlegar tölur og frekari gögn um landsmenn verða svo birtar á næsta ári. Manntalið var gert í mars og apríl á þessu ári. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×