Innlent

Misstu stjórn á vespu og slösuðust

Gissur Sigurðsson skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Tveir fjórtán ára drengir meiddust þegar annar þeirra missti stjórn á vespu, sem þeir voru báðir á með þeim afleiðingum að þeir féllu á gangstíginn, sem þeir óku eftir í gærkvöldi.

Þetta var skammt frá Spönginni í Grafarvogi.  Þeir voru fluttir á slysadeild og foreldrar þeirra látnir vita. Piltaarnir hlutu áverka í andliti, en munu að öðru leiti ekki vera alvarlega meiddir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×