Lífið

Missti fóstur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Lindsay Lohan sagði í tveggja tíma löngum lokaþætti af raunveruleikaþættinum Lindsay í gær að hún hefði misst fóstur. Var þetta á þeim tíma sem hún heimtaði tveggja vikna hlé á tökum á þáttunum sem sýndir eru á OWN, sjónvarpsstöð spjallþáttadrottningarinnar Opruh Winfrey.

"Enginn veit þetta og við getum klárað eftir þetta en ég missti fóstur þegar við tókum frí í tvær vikur," sagði Lindsay gráti næst. 

Eftir langt hlé sagði hún svo:

"Þetta er löng saga."

Lindsay vildi ekki fara nánar út í þessa átakanlegu lífsreynslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×