Innlent

Missti bílinn út í lausamöl

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Loftmyndir.is
Frumrannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á tildrögum banaslyssins á Suðurlandsvegi við Klifanda í gær, bendir til að ökumaður bílsins hafi misst stjórn á honum í lausamöl. Þá hafi bíllinn lent utanvegar með þeim afleiðingum að ítölsk kona, fædd árið 1949, lét lífið. Slysið varð við um klukkan 15 í gær.

Ökumaður bílsins slasaðist alvarlega og var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar að Bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi. Þar var hann settur í öndunarvél. Auk þeirra voru tveir aðrir í bílnum.

Líðan mannsins er nú stöðug og hefur hann verið tekinn úr öndunarvélinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×