Fótbolti

Mismundandi andstæðingar gera mótið mjög skemmtilegt í ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hallbera Guðný Gísladóttir í leiknum á móti Japan.
Hallbera Guðný Gísladóttir í leiknum á móti Japan. Vísir/Getty
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður aftur í sviðsljósinu á Algarve-mótinu í dag þegar stelpurnar okkar mæta Spánverjum í lokaleik sínum í riðlinum. Leikur Íslands og Spánar hefst klukkan 14.45 að íslenskum tíma.

Ísland hefur eitt stig í riðlinum en er að fara að mæta liði Spánverja sem hefur unnið tvo fyrstu leiki sína á mótinu. Spánn vann meðal annars 3-0 sigur á Noregi í síðasta leik og það þrátt fyrir að spila manni færri í heilan hálfleik.

„Ég mun gera einhverjar breytingar. Nú fengum við reyndar tvo daga í hvíld og það munar um það. Ég geri breytingar á liðinu en verð samt með eins sterkt lið og við mögulega getum,“ sagði Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska liðsins.  

„Við erum að leita eftir svörum og reyna að bæta okkur. Við viljum líka forðast meiðsli. Við getum ekki forðast svona slys eins og varð í fyrsta leiknum en við getum forðast það að lenda í vöðvatognunum. Við erum líka að hugsa um það að við erum bara á miðju undirbúningstímabili heima á Íslandi,“ sagði Freyr.

Spænska liðið hefur sýnt það í fyrstu tveimur leikjunum að þar fer lið sem getur gert flotta hluti á Evrópumótinu í sumar.  „Þær eru með hrikalega gott sendingalið en það verður mjög gaman að fá að spila við Spánverjana og sjá hvernig þær henta okkur. Þetta er mjög skemmtilegt mót í ár út frá mismundandi andstæðingum,“ sagði Freyr.

Íslenska liðið gerði 1-1 jafntefli við Noreg í leik sem Freyr lýsti sem stríðsleik með endalaust af návígum.  Liðið tapaði síðan fyrir Japan á föstudaginn þar sem Sara Björk Gunnarsdóttir lék sinn hundraðasta landsleik.

„Þetta er í tíunda skiptið sem ég er á Algarve. Þetta mót er alltaf góður undirbúningur fyrir okkur, bæði fyrir komandi stórmót en líka til að sjá hvar leikmenn eru staddir og hvernig við erum að spila á móti þessum stórþjóðum sem eru á þessu móti,“ segir Sara Björk og bætti við.

„Það er stórt ár fram undan og allar eru að æfa rosalega vel. Það vilja líka allar sýna sig og sanna sig. Freyr gefur öllum tækifæri til þess.  Þetta er samt bara undirbúningur fyrir EM en allt sem skiptir máli verður á EM,“ sagði Sara.


Tengdar fréttir

Einstakur íþróttamaður sem hugsar ótrúlega vel um sig

Sara Björk Gunnarsdóttir varð í gær sú langyngsta sem nær að spila hundrað A-landsleiki fyrir Ísland. Landsliðsþjálfarinn sér hana alveg fyrir sér spila tvö hundruð landsleiki og hún sjálf segist eiga nóg eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×