Viðskipti innlent

Mishá söluþóknun fasteignasala villandi

Snærós Sindradóttir skrifar
Íbúðaverð í Þingholtunum er með því hæsta sem gerist á landinu. Seljendur þar ættu að huga að söluþóknun fasteignasala áður en til viðskipta er stofnað.
Íbúðaverð í Þingholtunum er með því hæsta sem gerist á landinu. Seljendur þar ættu að huga að söluþóknun fasteignasala áður en til viðskipta er stofnað. Fréttablaðið/Vilhelm
Munurinn á söluþóknun fasteignasala getur hlaupið á hundruðum þúsunda. Söluþóknunin er í flestum tilfellum gefin upp sem prósenta af söluverði fasteignar. Ofan á prósentuna bætist svo virðisaukaskattur en fasteignasalar greina frá því með ólíkum hætti.

Tryggvi Axelsson
Samkvæmt Tryggva Axelssyni, forstjóra Neytendastofu, er þetta fyrirkomulag villandi. „Það er eðlilegt gagnvart viðskiptamanninum að hann fái tölu fyrir framan sig.“ 

Tryggvi segir mikilvægt að neytendur kynni sér málin vel áður en þeir velja fasteignasölu. „Það getur verið mikill verðmunur og þá er mikilvægt að neytendur fái endanlegt áætlað verð,“ segir hann. Misjafnt er hvort fasteignasölur taka greiðslu óháð því hvort eignin selst eða ekki. 

Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, tekur undir að mikilvægt sé að fólk skoði vel hvaða þjónustu fasteignasölur bjóða uppi á. „Þetta sýnir glögglega að það er mikil samkeppni á þessum markaði. Það er talsvert mismunandi hvaða þjónusta er inni í prósentunni.“

Grétar Jónasson
Hann segir það vandasamt verk að ætla að setja upp fasta tölu með virðisaukaskatti í upphafi söluferlis. „Vandinn er að það er sett ákveðið verð á eignina en svo er óljóst á hvað eignin mun fara. Það getur valdið vafa ef menn eru að búa sér til einhverjar tölur fyrir fram.“

Grétar segir Félag fasteignasala ekki geta samræmt gjaldskrár eða þá samninga sem fasteignasölur fara eftir. „Félag fasteignasala má ekki, út frá samkeppnislögum, koma nærri neinni vinnu varðandi þóknun fasteignasala. Það er alfarið hver fasteignasala fyrir sig sem ákveður hvernig hún gerir það.“



Samkvæmt verðkönnun Neytendastofu getur kostnaður við sölu á 30 milljóna íbúð verið mjög misjafn:

Á fasteignasölu A er söluþóknunin 1,7 prósent sem er algengasta hlutfallið.

Með virðisaukaskatti greiðir seljandi íbúðar því 640.050 krónur í söluþóknun til fasteignasölunnar.

Á fasteignasölu B er söluþóknunin 2,5 prósent. Með virðisaukaskatti greiðir seljandi íbúðarinnar því 941.250 krónur.

Á þriðju fasteignasölunni getur seljandi samið um fasta söluþóknun sem er óháð verði eignarinnar. Með virðisaukaskatti er söluþóknunin 299.900 krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×