Innlent

Mis­ferli upp á tugi milljóna: Verjandi og marg­dæmdur kyn­ferðis­brota­maður sæta gæslu­varð­haldi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Karlmennirnir þrír eru í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.
Karlmennirnir þrír eru í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni. Vísir/GVA
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn héraðssaksóknara á umfangsmiklu peningamisferli. Hann er fjórði aðilinn sem sætir gæsluvarðhaldi fram á föstudag að óbreyttu. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari staðfestir fjórðu handtökuna og gæsluvarðhald yfir honum í samtali við Vísi. Hann vill ekki tjá sig nánar um málið að svo stöddu.

Athygli vekur að maðurinn, sem er lögmaður og var handtekinn á mánudag, var mættur í skýrslutöku hjá umbjóðanda sínum, karlmanni sem handtekinn var ásamt öðrum manni og konu fyrir helgi. Öll voru úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald. Lögmaðurinn var hins vegar handtekinn við skýrslutökuna á mánudag þar sem hann er grunaður um aðild að málinu. Var hann í framhaldinu úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Málið kom upp í síðustu viku eftir ábendingu frá fjármálastofnun um óeðlilega millifærslu með peninga og greindi Vísir frá málinu á mánudagsmorgun. Samkvæmt heimildum Vísis var farið í handtökur að lokinni greiningarvinnu. Var bankareikningum meðal annars lokað en heildarupphæðin sem til rannsóknar er nemur um 50 milljónum króna. Leikur grunur á að meðal annars sé um peningaþvætti að ræða með millifærslum á milli landa.

Tæp sjö ár í fangelsi fyrir kynferðisbrot

Öll fjögur eru íslenskir ríkisborgarar en ólíkt hinum þremur sem sitja í gæsluvarðhaldi á einn hinna fjögurra sem sæta gæsluvarðhaldi að baki langan sakaferil, bæði fyrir kynferðisbrot og fjársvik. Sá heitir Gunnar Rúnar Gunnarsson og er á 43. aldursári.

Brot sem Gunnar Rúnar hefur hlotið dóma fyrir telja vel á annan tug. Þar á meðal hefur hann verið dæmdur samanlagt í sex ára og tíu mánaða fangelsi fyrir þrjú kynferðisbrotamál, bæði fyrir brot gegn ungum stúlkum og andlega veikri konu.

Þá var fjallað um Gunnar Rúnar og hans hlutverk sem „útfararstjóra“ í frétt Vísis í fyrra í kjölfar umfjöllunar Bresta um fyrirbærið „útfararstjóra.“

Hinir karlmennirnir eru um og yfir fertugt. Annar var handtekinn ásamt Gunnari Rúnari og konu, sem fréttastofa þekkir ekki deili á, í aðgerðum lögreglu fyrir helgi. Lögmaðurinn var svo handtekinn í gær og úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudags líkt og hin þrjú.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×