Viðskipti innlent

Mint Solutions sprotafyrirtæki ársins

Sæunn Gísladóttir skrifar
Hér má sjá íslensku verðlaunahafana.
Hér má sjá íslensku verðlaunahafana. Mynd/Haraldur Guðjónsson
Íslensku úrslitin í norrænu frumkvöðlakeppninni Nordic Startup Awards eru nú ljós. Tilkynnt var um úrslitin þriðjudaginn 26. apríl á Nýsköpunarhádegi sem haldin eru reglulega á vegum Icelandic Startups, Nýherja og Stjórnvísi. Icelandic Startups er samstarfsaðili Nordic Startup Awards hér á landi. Íslensku sigurvegararnir munu keppa við hin norrænu löndin á Grand Finale sem að þessu sinni er haldið á Íslandi 31 maí næstkomandi.

Verðlaununum er ætlað að efla tengsl norrænu sprotasenunnar sem og að verðlauna þá sprota, fjárfesta og stuðningsaðila sem taldir eru hafa skarað fram úr á árinu. Keppt er í þrettán flokkum. Almenningi gefst kostur á að tilnefna sinn uppáhalds sprota, frumkvöðul, fjárfesti og aðra fulltrúa sprotasamfélagsins; frumkvöðlasetur osfrv. Almennar kosningar sem gilda 20% á móti vægi dómnefndar.

Íslensku úrslitin í Nordic Startup Awards árið 2016 eru eftirfarandi:

Startup Media of the Year: Norðurskautið

Best Investment Company: Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins

Best Business Angel: Kjartan Örn Ólafsson

Best Office Space: Íslenski Sjávarklasinn

Best Accelerator Program: Startup Reykjavik

Best Social Tech Startup: Karolina Fund

Best IoT Startup: Medilync

Best Exponential Startup: Guide to Iceland

Best Bootstrapped: GeoSilica Iceland

CTO Hero of The Year: Ragnar Fjölnisson

Newcomer of the Year: Sling

People's Choice: Medilync

Founder of the Year: Fida Abu Libdeh

Startup of the Year: Mint Solutions

Verðlaununum er ætlað að efla tengsl norrænu sprotasenunnar sem og að verðlauna þá sprota, fjárfesta og stuðningsaðila sem taldir eru hafa skarað fram úr á árinu. Verðlaunin voru fyrst haldin árið 2012 og meðal sigurvegara síðustu ára eru Falcon Social frá Danmörku og Neil Murray ritstjóri Nordic Web. Ísland hefur tvisvar hreppt aðalverðlaunin, árið 2014 var Quizup  sprotafyrirtæki ársins og í fyrra var Startup Reykjavík valinn viðskiptahraðall ársins. Í ár bárust yfir 18.000 atkvæði í kosningu í undanúrslitum allra norrænu landanna. Það er mikil aukning frá því í fyrra en þá bárust 14.000 atkvæði í heild sinni fyrir undanúrslit og aðalúrslit verðlaunanna.  

Nordic Startup Awards vinnur með leiðandi aðilum í sprotasenunni í hverju norðurlandi fyrir sig. Umsjónaraðili verðlaunanna hér á landi er Icelandic Startups sem mun sjá um framkvæmd norræna lokaviðburðarins í Hörpu 31. maí næstkomandi. Verðlaunin verða haldin í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Atvinnu-  og nýsköpunarráðuneytisins og eru allir velkomnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×