Innlent

Minntust Birnu í Vatnsmýri: „Látum ástina vera hatrinu yfirsterkari“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Á annan tug var saman kominn.
Á annan tug var saman kominn. vísir/anton brink
Hópur fólks kom saman í minningarlundinum um Útey í Vatnsmýri á tíunda tímanum í kvöld til að tendra kerti í minningu Birnu Brjánsdóttur. Hún fannst látin í dag við Selvogsvita á Suðurlandi.

Að sögn Ingu Bjarkar Bjarnadóttur, sem öðrum fremur stóð að skipulagningu viðburðarins, var blásið til samverustundarinnar með skömmum fyrirvara. Mikill vilji hafi verið til að gera eitthvað til minningar um Birnu og þótti henni og öðrum við hæfi að safnast saman á þessu svæði.

Sjá einnig: Mikilvægt að foreldrar ræði við börn sín um Birnu

Inga segir Unga jafnaðarmenn hittast árlega í lundinum til að minnast þeirra sem létust í Útey árið 2011 og nú, rétt eins og þá, eru henni orð Jens Stoltenberg, þáverandi forsætisráðherra Noregs, í huga þegar hún minntist hinnar tvítugu Birnu.

„Látum ástina vera hatrinu yfirsterkari,“ segir Inga í anda Stoltenbergs. „Mér þótti við hæfi að standa saman og sýna að okkur er ekki sama.“

Fyrr í kvöld var greint frá því að Grænlendingar hefðu safnast víðsvegar saman og kveikt á kertum til minningar um Birnu. „Við tengjumst Íslendingum nánum böndum og mér þykir mikilvægt að sýna samúð okkar með þessum hætti.“

Vísir/Anton Brink

Tengdar fréttir

Mikilvægt að foreldrar ræði við börn sín um Birnu

Séra Vigfús Bjarni Albertsson segir að það sé mikilvægt að börn fái upplýsingar um mál Birnu Brjánsdóttur frá foreldrum sínum en ekki annarsstaðar frá þar sem þau muni alltaf geta í eyðurnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×