Golf

Minnsta áhorf á Masters mótið í 10 ár

Arnar Ottesen skrifar
Bubba Watson fagnar í græna jakkanum
Getty Images
Áhorfið á Masters mótið sem lauk á sunnudaginn með sigri Bubba Watson fékk minnsta sjónvarpsáhorf í Bandaríkjunum í 10 ár. Meðaltals áhorf var 7,8% sem þýðir að 7,8% heimila í Bandaríkjunum horfðu á beina útsendingu frá mótinu.

Í fyrra horfðu 10,2% heimila á spennandi mót sem endaði í bráðabana þar sem Adam Scott vann eftirminnilega. Árið 2004 þá var sjónvarpsáhorf á Masters mótið 7,3%. Þá var lokadagur mótsins páskadagur. En það skýrir samt ekki lítið áhorf það ár því lokadagur hefur líka verið á Masters árin 2007, 2009 og 2012. 

Það eru nokkrir þættir sem gætu skýrt þetta litla áhorf í ár. Tiger Woods var ekki með vegna meiðsla, hann hefur mikið að segja með áhorf á öll golfmót. Phil Mickelson náði ekki í gegnum niðurskurðinn eftir tvo daga.

Bubba Watson var með þægilega tveggja högga forystu þegar hann kom á seinni níu holurnar og það var engin sem veitti honum samkeppni á seinni níu. Mótið náði aldrei að verða eins spennandi og undanfarin ár.

Mesta áhorf á lokadag Masters mótsins er 15,8% áhorf árið 1997. Það met kom þegar Tiger vann eftirminnilegan sigur með 12 högga mun. Tiger var 18 höggum undir pari á meðan næsti kylfingur Tom Kite var á 6 höggum undir pari. Það er mesti munur á Masters mótinu frá upphafi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×