Erlent

Minnst tólf látnir í sjálfsmorðsárásum í Damascus

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá Damascus.
Frá Damascus. Vísir/AFP
Minnst tólf létu lífið í þremur sjálfsmorðsárásum í Damascus, höfuðborg Sýrlands. Íslamska ríkið hefur lýst yfir ábyrgð á árásunum og segir tvo vígamenn þeirra hafa sprengt sig í loft upp með sprengjubeltum og einn hafi notast við bílsprengju.

Minnst 55 eru sagðir hafa særst í árásunum.

Samkvæmt BBC eru íbúar hverfisins þar sem árásin var gerð að mestu sjítar og hafa vígahópar ítrekað gert árásir þar. Í hverfinu er einn helsti helgidómur sjíta og hefur það gert hverfið að sérstöku skotmarki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×